Catan klúbburinn varð til sem afleggjari frá hinum víðsfræga bjórklúbbi okkar hér á Stavnsvej er Kiddi kallast, er nokkrir hugrakkir menn úr þeim klúbbi tóku sig til og hófu að spila Catan. Í fyrstu var um grunnspilið að ræða en margt vatnið hefur runnið til sjávar síðan og nú etja menn kappi hvorn við annan í alvöru stórcatan spili þar sem spilað er með 4 spilasett, Sæfara, Riddara og Borgir, og tvö Grunnspil.
Spilakvöld fara þannig fram að staður er valinn og svo er spilað fram undir morgun næsta dags. Á meðan á spili stendur skola menn svo niður fleiri lítrum af eðal bjór og smjatta á einhverju óhollu og oftast er CATAN RÉTTURINN borinn á borð en þar er um að ræða heimatilbúna mexikanska ídífu sem enginn getur staðist ummmmmmmmm.
Reglur eru einfaldar
bannað er að svindla (sú regla sem oftast er brotin)
aldrei fleiri en tveir spilarar aftan í sama manni
bannað er að nota vaselin við refsingar
aldrei og ég endurtek aldrei að hjálpa Vigfúsi á neinn hátt því hann er lúmskur og lævís andskoti sem vinnur of oft