Hér má finna góð ráð frá meðlimum Catan klúbbsins.  Þessar fínu ábendingar frá okkur hinum reyndu spilurum munu vonandi aðstoða litla Catan nörda að fóta sig í hinum harða Catan heimi.
 

  1. það er afar sniðugt að hafa með sér góðan bjór sem getur haldið manni félagsskap ef illa gengur.  Það er fátt leiðinlegra að geta ekkert gert og sitja bara uppi með Tuborg eða jafnvel diet Kók (Freysi)
     
  2. Það er mjög gott ráð að hafa góðar gætur á öðrum meðspilurum sér í lagi ef þeir heita Vigfús.  Já kauði á það nefnilega til að vera ansi erfiður viðureignar og lúmskur er hann með eindæmum.  Þegar Fúsi fer að gráta þá er það þjóðráð að loka eyrunum og hamast enn meira á honum.  Það er eina leiðin. (Freysi)
     
  3. Það eru nánast  lög að skipta ekki við þann sem er að vinna og sérstaklega ekki þegar hann vantar aðeins örfá stig.  Best er að skipta sem minst við aðra því um leið og það hjálpar þér aðeins þá hjálpar það einnig andstæðingnum og það er aldrei gott, sérstaklega ef hann heitir Vigfús. (Freysi)
     
  4. Mjóg gott er að stilla öldrykkju í hóf, því fúllúr maður er drúkkinn maður.  Erfitt er að einbeita sér að spilinu eftir því sem bjórum fjölgar.  Ég lendi nefnilega oftast í þessum vanda. (Freysi)
     
  5. Oft getur það verið afar varasamt að bregða sér frá á salerni eða í stjörnuskoðun á meðan á spili stendur.  Það er oftast nýtt sem tækifæri til að tala illa um mann og plotta gegn manni.  Ég hef t.d. þjálfað blöðruna það vel að ég þarf oftast bara á klóið þegar spili er lokið. Mjög sniðugt bragð (Freysi)
     
  6. Þegar sá sem stigahæstur er bregður sér frá, t.d. á salernið er mjög sniðugt að grípa tækifærið og leggja á ráðin um hvernig best sé að setja vel aftan í kauða (Freysi).
     
  7. Suma menn ber svo að fara varlega að og það borgar sig ekki alltaf að vera vondur við þá.  Þetta á t.d. við um Freysa sem er afar hörundssár og á það til að láta eldi og brennisteini rigna yfir mann til baka. (Freysi)
     
  8. Ekki gleyma sjóræningjanum í Stórkatan.  Menn færa hann allt of sjaldan en það getur verið ansi sterkt að loka á siglingarleiðir, sérstakelga þegar 6 eru að spila og þröngt er á þingi. (Freysi)
     
  9. Gott er að fylgjast vel með Freysa og spilamensku hans og gera svo eitthvað þveröfugt við hann.  Freysi vinnur sjaldan og klúðrar hlutunum um miðbik spils.  Veit ekki alveg hvað það er en það er eitthvað. (Freysi).