Velkomin á þetta litla athvarf okkar á veraldarvefnum.  Síða þessi er ætluð sem tól til að auðvelda vinum okkar og ættingjum innsýn inn í veröld okkar á meðan á dvöl okkar stendur hér í DK.
Við komum hingað til Danmerkur í ágúst 2003 með lítinn snáða á þriðja ári og eftirvæntingu í hjarta.  Áætlað er að ljúka dvölinni árið 2009 og halda þá til föðurlandsins með nýjar gráður á bakinu og einn litinn snáða að auki.

Hér er sem sagt hægt að lesa helstu fréttir af okkur, skoða nýjustu myndir eða kíkja á barnalandssíðu þeirra bræðra Mána og Ísaks Leó.  Fyrir áhugasama þá má svo sjá hvernig viðrar hjá okkur hverju sinni.  Bjórbókin fékk svo að fljóta með bara svona til gamans ;)

Hér vinstra megin má svo sjá nýjustu myndirnar okkar.  Brennidepillinn mun svo hýsa mikilvæga atburði sem framundan eru, t.d. heimsóknir, ferðir, útskriftir, afmæli eða jafnvel barnsburð.