Hér má finna okkar uppáhalds staði í Árósum svo sem kaffihús, pöbba, almenningsgarða og annað góðgæti.
Kaffihús:
Kaffe Englen - lítið og huggulegt kaffihús þar sem hægt er að sitja ýmist úti eða inni. Staðsetning er mjög góð í hjarta miðbæjarins. Hér fæst besta espresso í bænum og allt annað kaffi er mjög gott. Ískaffið þeirra er svakalega gott og vel unnið og mælum við með því í sumarhitanum. Hægt er að borða hér mjög fínan mat og gerum við það oft. ATH hér fæst hveitibjórinn Blanch Denamur af krana.
Kaffe SigFreds - þetta er fyrsta uppáhalds kaffihúsið okkar sem heitir næstum það sama og síðan okkar. Hér fæst afar góður espresso og latteið er einnig gott. Hægt er að fá góðar samlokur og aðrar kökur sem og bjór. Það besta við SigFreds fyrir utan espressoinn þeirra var alltaf St. Feuillien af krana :) ummmm en það er jú besti kranabjór veraldar. Nú er einnig hægt að fara á SigFreds bókakaffihús og lesið í bók eða blöð á meðan kaffið er sötrað rétt eins og á Súfistanum heima á Íslandi. Kaffihúsin eru tvö talsins og bæði staðsett á strikinu.
Lesta kaffihúsið - man nú ekki hvað þetta kaffihús heitir en við köllum það Lestakaffihúsið því það er staðsett í Buuns gallerí fyrir ofan lestastöðina þannig að maður situr og horfir á lestirnar koma og fara út um gluggana. Máni er voðalega hrifinn af þessum stað því honum finnst mjög gaman að því að sjá lestirnar koma í fjarska. Notum þetta kaffihús mikið þegar við erum að bíða eftir gestum frá Köben. Kaffið er hins vegar ekkert spes en matur er góður.
Pöbbar:
RisRas - nefni ég fyrst því þetta er sá pöbb sem við héldum mest uppá í upphafi og fyrsti pöbbinn sem við fundum með gott úrval af bjór. Reyndar er úrvalið með því besta sem gerist hér í Árósum og má fá marga ljúfa karla af krana hér. Þetta er samt enginn rómó huggu staður. Ef maður er hins vegar bjórvinur mikill þá er þetta mjög fínn staður. Pínu innreyktur en sleppur. Í kjallaranum má svo finna borðfótboltaspil í topp klassa. Loks má svo nefna að hér fær maður St. Feuillien af krana allan ársins hring ásamt jólabjórnum og páskabjórnum þegar svo ber undir.
Øl Mølvitten - er lítill og skemmtilegur bjórstaður með helling af bjór frá öllum heimshornum. Hér er hægt að fá mun fleiri kranabjóra en á RisRas og svo er flöskuúrvalið mjög svipað. Sem sagt frábær bjórstaður. Þetta er minni staður en RisRas en ólíkt honum er hægt að sitja úti þegar veður er gott. Hér er hægt að skrá sig á lista og þegar maður er búinn að smakka 100 mismunandi bjóra þá fær maður gullplatta á vegg staðarins með nafni sínu á. Mjög skemmtilegt.
Veitingahús:
Le Coqk - lítill franskur resturant með lítinn en afskaplega gómsætan matseðil. Mjög fínn staður en það eina sem truflar okkur Sigrúnu er nálægðin við náungann. Hehehe já hér er nenfilega þröngt raðað og getur verið frekar óþægilegt.
Italia - ítalskur resturant hvað annað. Þetta er ekki neinn svaka staður en þó fín pizzería með afar ljúffengum pizzum. Staðurinn er mjög stór og því auðvelt að fá borð með stuttum fyrirvara. Þjónustan er svo sem í lagi en oft fær maður þó serverað rangar pizzur. Við förum þó oft á þennan stað til að fá okkur pizzu en með þann fyrirvaran á að mistök gætu átt sér stað.